top of page
hope.jpg

Við bjóðum upp á leiðsögn í hugleiðslu fyrir hópa eða einstaklinga.

Áhugasamir geta haft samband við Laufeyju á lifandi@hugun.is.

Nærandi hugleiðsla

Hugleiðsla er eitt besta verkfæri sem við höfum til að bæta líðan og andlegt jafnvægi.

 

Í hugleiðslu þjálfum við athygli okkar og meðvitund. Hugurinn kyrrist og við komumst í dýpri tengingu við eiginn kjarna. Þannig eflum við einbeitingu og skýrleika og komum jafnvægi á líkama, huga og sál. 

 

Rannsóknir hafa sýnt að hugleiðsla hefur margvísleg bætandi áhrif á lífsgæði.

 

Hugleiðsla getur til dæmis:

  • dregið úr streitu og kvíða

  • bætt minni og svefn

  • styrkt ónæmiskerfið og taugakerfið

  • dregið úr upplifun verkja

  • gefið hugarró og innri frið

  • bætt tilfinningalega líðan

  • eflt einbeitingu og skýrleika

  • ... og ýmislegt fleira

 

Um þessar mundir erum við með hugleiðslunámskeið fyrir eldri borgara í Félagsmiðstöðinni í Hvassaleiti og í Gullsmára, Kópavogi. Laufey Arnardóttir leiðir tímana.

 

Markmiðið með tímunum er að efla hugarró, vellíðan og sátt.

bottom of page