top of page

Mánudaga og miðvikudaga kl. 16:30 - 17:45

í Rósinni, Bolholti 4, Rvk, 4. hæð t.v.

Verð: 18.500 kr á mánuði (8 tímar).

Næstu námskeið: 

4. mars - 27. mars 2024

3. apríl - 29. apríl 2024

Hægt að byrja hvenær sem er, en nýtt tímabíl hefst með fyrsta tíma hvers mánaðar.

Skráning og upplýsingar á laufey@hugun.is

og í síma 864 4014.

Jóga með núvitund

 

Jóga vinnur gegn streitu og er frábær leið til að efla núvitund. Það stuðlar að jafnvægi, góðri heilsu og hugarró.

 

Þessir tímar henta bæði byrjendum og þeim sem hafa reynslu af jóga. Tímarnir eru mjúkir en öflugir og hver og einn getur lagað æfingarnar að sínum þörfum.

 

Unnið er með:

  • öndunaræfingar sem kyrra hugann og efla lífsorkuna

  • upphitun sem mýkir og liðkar

  • jógastöður sem styrkja og liðka líkamann og auka jafnvægi

  • valdar æfingar úr Clinical Somatic Exercises sem vinna að því að losa spennu úr líkamanum

  • hugleiðslu- og einbeitingaræfingar sem hjálpa okkur að vera í núinu og tengjast okkar innra sjálfi

  • endurnærandi slökun

 

Áherslan er á mýkt og dýpt, kærleika, visku og gleði og við leitumst við að halda vakandi athygli í augnablikinu, á líkama, huga og tilfinningum út í gegn þannig að jógatíminn verði eins og ein löng hugleiðsla.

Kennari: Laufey Arnardóttir

 heilsa - hugarró - styrkur - vellíðan - jafnvægi - gleði 

bottom of page