top of page

Jóga í Mosfellsbæ
Jóga með vakandi vitund (núvitund).
Í jógatímunum er unnið með jógastöður sem styrkja og liðka líkamann og auka jafnvægi, öndunaræfingar sem kyrra hugann og efla lífsorkuna, hugleiðslu og einbeitingaræfingar og í lok hvers tíma er endurnærandi slökun.
Áherslan er á mýkt og dýpt, kærleika, visku og gleði og við leitumst við að halda vakandi athygli á líkama, huga og tilfinningum út í gegn þannig að jógatíminn verði eins og ein löng hugleiðsla.
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:40 - 18:50.
Kennari: Laufey Arnardóttir
Staður: Krikaskóli, Mosfellsbæ
Verð: 14.000 kr. (einn mánuður).
Skráning og upplýsingar á laufey@hugun.is og í síma 864-4014.
Góð heilsa er gulli betri!
♥ heilsa ♥ hugarró ♥ styrkur ♥ vellíðan ♥ jafnvægi ♥ gleði ♥
bottom of page